Færsluflokkur: Bloggar

Hver er þessi Logi???

Vá hvað menn vinna vel fyrir launum sínum hjá morgunblaðinu. Frosti Logason eða Logi Frostason. Skiptir s.s. ekki máli er það. Það er ekki eins og nafnið hafi komið oft upp í fréttinni ;) Frosti er heldur ekkert þjóðþekktur einstaklingur er það? Guð minn almáttugur!!!

 

Ég tek undir með þeim Mána og FROSTA að þessi uppákoma eykur ekki áhuga minn á rappi.


mbl.is Allt sprakk í loft upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er að hjá Rúv

Alþingi er með sér rás í sjónvarpinu en samt þarf að taka 2 - 2 og hálfan tíma frá opna breska golfmótinu frá mér. Ég er búinn að hlakka til í allt sumar, hafandi spilað þennan völl. Eru ekki margar aukastöðvar sem hægt væri að setja golfið á. Ég ætla ekki að draga úr mikilvægi þess sem verið er að ræða á alþingi en þetta sýnir enn og aftur vanhæfni stjórnenda Rúv.
mbl.is Atkvæðagreiðslan í beinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er engin furða að við skuldum meira en við eigum

Það er nú ekki skrítið að við skuldum meira en við eigum. Verðbætur af 20 milljón kr. láni ná sennilega hátt í meðallaun íslendinga (eða kannski frekar miðgildi því þá þurkast milljóna karlarnir út). Ég er ekki að vera með neina sjálfsvorkun því ég stend vel undir mínu og fólk á auðvitað ekki að skuldsetja sig fram úr ráði en ef við reiknum dæmið miðað við verðbólguna eins og hún hefur verið þá er nokkuð augljóst að verðbæturnar eiga eftir að fella bróðurbart minnar kynslóðar sem hefur verið að nýta sér "gjafmildi" bankanna síðustu árin.

 

Kv. Sponni


mbl.is Flestir greiða minna en 150 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ingvar Jónsson

Höfundur

Ingvar Jónsson
Ingvar Jónsson
Kennarapakk frá Þorlákshöfn
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband